
Pressun olíunnar
Avókadó olía er unnin beint úr græna holdi ávaxtarins, en steinninn og hýðið eru fjarlægð. Mjúku aldinkjötinu er þjappað saman með mildum mekanískum aðferðum og án kemískra leysiefna. Með þessu varðveitast vítamín og andoxunarefni ávaxtarins í ferlinu.
Dæmigerð fræolía er aftur á móti unnin úr hörðum fræjum eða kjörnum plantna. Í framleiðslu myndast gríðarlegur þrýstingur við vélræna pressun sem býr til mikinn núningshita. Næringarefni glatast að miklu leytu í hitanum.
Í stórtækri iðnaðarframleiðslu fræolía er í ofanálag notast við kemísk efni (oftast hexan) til að leysa olíu úr fræmassanum. Við þetta glatast enn meira næringarefni.
Einómettuð fita
Avókadó olía er rík af einómettaðri fitu og þá helst í formi olíensýru. Olíensýra er þekkt fyrir að hafa bólgueyðandi áhrif í mannslíkamanum og getur einnig stuðlað að lækkun slæma kólestrólsins í blóðinu (LDL). Þá hefur avókadó olía sýnt fram á eiginleika sem hjálpa líkamanum við upptöku vítamína úr annarri fæðu, s.s. A, D, E og K.
Augnheilsa
Avókadadó olía inniheldur náttúrulega andoxunarefnið lútein. Mannslíkaminn framleiðir ekki lútein og treystir alfarið á upptöku efnisins úr fæðu. Lútein sem flokkast sem karótínóíð gegnir mikilvægu hlutverki í heilsu manna og þá sérstaklega augnheilsu. Lútein safnast fyrir í sjónhimnunni og virkar sem náttúrúleg sólgleraugu með því að sía blátt ljós frá sólinni og skaðlega geisla frá skjám. Þá vinnur lútein gegn aldurshrörnun augnanna og getur minnkað líkur á aldursbundinni sjónhimnurýrnun (AMD) auk skýmyndun á auga. Nýlegar vísbendingar gefa einnig til kynna að lútein hjálpi starfsemi heilans og auki við minni manna.
