top of page
Avokado_1 copy.png

Spurningar?
Við eigum svör

Allt sem þú vildir vita um majó. Og aðeins meira.

Hvað er svona öðruvísi við Jón Viðar majó?

Góð spurning! Jón Viðar er ekkert venjulegt majó. Við notum 100% avókadóolíu í stað hefðbundinna jurtaolía. Engin óþarfa aukaefni, bara vandað hráefni og gott majó.

Hvernig á að geyma Jón Viðar majó?​

Majó er best þegar vel er hugsað um það. Geymdu majóið í ísskáp við 2–4°C, en forðastu kaldasta hluta skápsins. Avókadóolían getur þykknað við kulda og breytt áferð majósins. Engar áhyggjur! Þótt majóið þykkni eða áferðin breytist við kulda þýðir það ekki að það sé skemmt. Lokaðu krukkunni vel eftir notkun og notaðu alltaf hreina skeið.

Af hverju avókadóolía?

Af því að gott majó byrjar á góðu hráefni! Avókadóolía er rík af einómettuðum fitusýrum, hefur milt bragð og hentar einstaklega vel í majónes. Okkur langaði að búa til majó úr vönduðu hráefni, án þess að fórna bragðinu. Einfalt og gott!

Hvað endist majóið lengi eftir opnun?

Eftir opnun geymist Jón Viðar majó í allt að 4 vikur í ísskáp við 2–4°C. Mundu bara að loka krukkunni vel og nota alltaf hreina skeið. Þá helst majóið gott sem lengst!

Inniheldur majóið ofnæmisvalda?

Já, Jón Viðar majó inniheldur eggjarauðu og sinnep, sem eru þekktir ofnæmisvaldar. Við mælum alltaf með að skoða innihaldslýsinguna á krukkunni ef þú ert með fæðuofnæmi.

Hvar fæ ég Jón Viðar majó?

Þú finnur Jón Viðar majó í verslunum Hagkaups, Fjarðarkaupum, Matlandi, Skalla Bistro og hjá Seiðkarlinum.

Gott majó er aldrei langt undan!

Er majónesið framleitt á Íslandi?

Já! Við framleiðum majóið sjálf í verksmiðjunni okkar í Kópavogi.

Langar þig að selja Jón Viðar vörur?

Frábært! Við erum alltaf opin fyrir nýju samstarfi. Ef þú vilt bjóða upp á Jón Viðar majó í versluninni þinni, á veitingastaðnum eða annars staðar, sendu okkur endilega póst. Við spjöllum saman og finnum út úr þessu!

bottom of page